3 Stjörnu hótel
Ahhh nice að vera á 3 stjörnu hóteli á meðan maður er í vinnunni :)
Já, erum að vinna það nálægt eyjafyrðinum að við ákváðum að gista bara þar, og báðum við Fjólu að finna handa okkur gistingu þar, og hann Gummi stakk upp á þessum stað og ekki sjáum við eftir því.
Sveitahótelið Sveinbjarnargerði, 3 stjörnuhótel. Mjög gott að vera hérna, góður matur, góð rúmm, mjög góð sturta, og NETIÐ er hérna líka :D
Þannig maður hengur á L2C eftir vinnu og þangað til maður fer að sofa ;) Allveg orðinn háður að þessari síðu.
Úff, svo er nú eitthvað að styttast í Jólin hef ég heyrt. Það verður nú eitthvað, veit ekki allveg hvort við verðum mikið hérna fyrir norðan að vinna, förum kannski í eitt almennilegt úthald, ef það.
Annars erum við Pétur búnir að reyna að koma tölvunni hans á netið, hann fór og keypti netkort en það virðist vera eitthvað helvítis driver vandamál vegna fyrrum netkorts, þessi helvítis tækni nú til dags er allveg drepleiðinleg stundum.
Stundum verður maður allveg brjál ef einhverjir hlutir virka ekki hjá manni.
Maður fer heim úr þessu úthaldi á Föstudaginn, spurning hvort maður fer aftur á Mánudaginn, langar helst að vera heima þá viku og versla jólagjafir og slz vesen. Svo er árshátið hjá Ljósvirkja þarna þarnæstu helgi, það er að segja 7 - 9 Des helgina. Verður víst svaka stuð þar, Raggý kemur með mér, og þetta er einhverstaðar út í rassgati hefur maður heyrt.
Svo er Pétur búinn að kaupa sér 2003 árgerð af Hi-Lux, helvíti flottan. 35" breyttann. Hvítann.
Nú fer maður líka að taka því aðeins rólega í þessu bíladóti, í staðinn fyrir að skipta alltaf um bíla, að fara að gera eitthvað fyrir þá kannski í staðinn :)
T.d. mun STi spoiler koma vonandi fljótlega á bílinn hjá mér, og vonandi efri spoiler á hann líka, rosalegur svipur sem mun koma á bílinn minn þá :) eru fínustu 17" Gunmetal WRX felgur undir honum eins og er, var næstum búinn að kaupa 17" nýjar Legacy felgur, þessar 6 arma sem eru undir nýjustu bílunum. En gott að maður getur aðeins haldið aftan af sér í þessu.
Já, þetta er nú bara komið nóg í bili finnst mér.






:*