Nýtt blogg
Heilmikið búið að ske síðan ég bloggaði síðast, sumt gott, en annað mjög slæmt.
Til að byrja með, þá er ég kominn með aðra vinnu, er að vinna á Hjólbarðaverkstæði Ísafjarðar. Þar er maður að dekkjavesenast, svo erum við líka með smurþjónustu, og svo eru líka svona minniháttar viðgerðir líka hjá okkur, þ.e.a.s. að skipta um bremsur og dempara og allt slz stöff![]()
Svo fór ég til RVK síðasta fimmtudag(31.Maí)
Raggý að fara í kistulagningu hjá ömmu sinni, og svo var amma hennar jörðuð Þriðjudaginn 5.Júní og var ég kistuberi fyrir gömlu konuna. Æðislega kona sem allir hefðu átt að fá að kynnast.
Svo fékk maður HRÆÐILEGAR fréttir Mánudaginn 4.Júní, deginum fyrir jarðarförina, þá var hún Guðbjört Lóa að kveðja okkur ![]()
![]()
![]()
Samhryggist öllum hennar aðstandendum.
Maður var bara eins og illa útleikinn boxari að fá að vita þetta.
Hún kenndi manni margt gegnum lífið, og eflaust hafa margir lesið bloggið hennar, blomaros.bloggar.is
Þar bloggaði hún um baráttu sína, leyfði okkur að fylgjast með hverskonar Hetja hún var.






en hva... bara orðin bílakall að atvinnu :D
hvað með veturinn... á ekkret að fara að setjast á skólabekkinn aftur ??
kiss kiss og knús knús