Jólin löngu búin.
Annars er ég nú líka kominn með Myspace síðu, slóðin mun vera http://www.myspace..com/bergurtorfa endilega kíkið :)
Jámm, annars er ég nú bara að vinna hérna í RVK núna, lítið að gera útálandi í svona frosti og ógeði.
Og haldiði ekki að WRXinn minn hafi bara ákveðið að gefast upp á milli jóla og nýárs. Iss stimpill nr.2 brann bara og allt fór í fokk, blokkin ónýt og læti.
Þannig hann er núna búinn að vera hjá F.Ó. núna síðan þetta skeði, og er að bíða eftir að það verði sett í hann nýja blokk, nýja stimpla, olíudælu og nýtt og shæní dót ;) Verst hvað reikningurinn verður fáránlega hár, en ég meina hvað á maður að gera, setjast niður og fara að gráta
Hlakka mega mikið til, því ég fæ bílinn í næstu viku, fer inn á mánudaginn hjá þeim og byrjað að raða vélinni í! :) Hlakka svo til :)
En ætli maður verði ekki að keyra skikkanlega fyrstu 1500 km
En já, svo ég haldi mér nú aðeins meira þarna á milli jóla og blabla, þegar bílinn bilaði, þá fórum við Raggý bara daginn eftir að kaupa bíl, ódýran, en fokkin fáránlega góðann, og auðvitað varð Subaru fyrir valinu, nánar tiltekið Subaru Legacy Station, árgerð 1997 með háu og láu drifi, sem er sneeld. Drífur anskotann allt þessi elska :) Mjög ánægður með bílinn, og Raggý mjög ánægð með hann. Þurftum að hafa bíl til að komast vestur í Súðavík um áramótin. Það var nú bara helvíti gaman að komast þangað, þó veðrið hefði nú mátt vera í betra skapi, var engann veginn að standa sig. Það var reynt að skjóta rakettu í mig, en Anna, litla systir Raggýjar fékk hana í magann, svo var líka skotið einni rakkettu frá næsta húsi í þakið hjá ömmu og afa Raggýjar og sprakk þar, og rigndi yfir okkur glitrandi púðri. það var nú meira helvítið, kallinn í næsta húsi bara morðóður!!
En já. fuck off, nenni ekki að skrifa meira :)
Kv.Bergur Torfason
Jól
Hafið það sem best yfir hátíðina.
Fríhelgi.
Núna situr maður að horfa á Heroes og reyna að gera við fartölvuna hans Péturs. Allveg að verða kominn með uppí háls af þessari tölvu, þar sem hún bara neitar að vinna með mér.
3 Stjörnu hótel
Ahhh nice að vera á 3 stjörnu hóteli á meðan maður er í vinnunni :)
Já, erum að vinna það nálægt eyjafyrðinum að við ákváðum að gista bara þar, og báðum við Fjólu að finna handa okkur gistingu þar, og hann Gummi stakk upp á þessum stað og ekki sjáum við eftir því.
Sveitahótelið Sveinbjarnargerði, 3 stjörnuhótel. Mjög gott að vera hérna, góður matur, góð rúmm, mjög góð sturta, og NETIÐ er hérna líka :D
Þannig maður hengur á L2C eftir vinnu og þangað til maður fer að sofa ;) Allveg orðinn háður að þessari síðu.
Úff, svo er nú eitthvað að styttast í Jólin hef ég heyrt. Það verður nú eitthvað, veit ekki allveg hvort við verðum mikið hérna fyrir norðan að vinna, förum kannski í eitt almennilegt úthald, ef það.
Annars erum við Pétur búnir að reyna að koma tölvunni hans á netið, hann fór og keypti netkort en það virðist vera eitthvað helvítis driver vandamál vegna fyrrum netkorts, þessi helvítis tækni nú til dags er allveg drepleiðinleg stundum.
Stundum verður maður allveg brjál ef einhverjir hlutir virka ekki hjá manni.
Maður fer heim úr þessu úthaldi á Föstudaginn, spurning hvort maður fer aftur á Mánudaginn, langar helst að vera heima þá viku og versla jólagjafir og slz vesen. Svo er árshátið hjá Ljósvirkja þarna þarnæstu helgi, það er að segja 7 - 9 Des helgina. Verður víst svaka stuð þar, Raggý kemur með mér, og þetta er einhverstaðar út í rassgati hefur maður heyrt.
Svo er Pétur búinn að kaupa sér 2003 árgerð af Hi-Lux, helvíti flottan. 35" breyttann. Hvítann.
Nú fer maður líka að taka því aðeins rólega í þessu bíladóti, í staðinn fyrir að skipta alltaf um bíla, að fara að gera eitthvað fyrir þá kannski í staðinn :)
T.d. mun STi spoiler koma vonandi fljótlega á bílinn hjá mér, og vonandi efri spoiler á hann líka, rosalegur svipur sem mun koma á bílinn minn þá :) eru fínustu 17" Gunmetal WRX felgur undir honum eins og er, var næstum búinn að kaupa 17" nýjar Legacy felgur, þessar 6 arma sem eru undir nýjustu bílunum. En gott að maður getur aðeins haldið aftan af sér í þessu.
Já, þetta er nú bara komið nóg í bili finnst mér.
Kvöldiđ.
Erum núna að vinna í Laxárvirkjun, og gistum á Staðarhól. Ótrúlega góð gisting þar, fengum bara sér herbergi með sturtu og eldunaraðstöðu. Mjög fínt hérna.
Svo svona í bílamálum þá er Legacyinn minn farinn, búinn að selja hann, og er maður LOKSINS kominn á Subaru Impreza WRX aftur. Það koma myndir seinna, þegar ég þríf hann á næstu helgi og drullast til að taka myndir ;)
Annars er allt gott að frétta af manni.
Veit ekki allveg hvað ég ætti að segja meira hérna.
Í helgarfríi! :)
En já, þetta er nú bara búið að vera fínt helgarfrí, búið að slaka á bara. Spurning um að skella sér í bíó í kvöld á þessa drarkness blabla mynd.
Svo er nú spurning hvort maður nái að kaupa OG-741 aftur, eða maður vonar allavega. Kemur í ljós á næstu dögum.
Og já Tinna, ég er búinn að taka örfáar myndir, reyni að koma þeim inn í dag. Annars tek ég hana aftur með mér og tek fullt af myndum og set hérna inná.
Veit ekki allveg hvað ég á að blogga meira um.
Lítill tími fyrir blogg.
T.d. er maður fluttur suður. Bý núna í efra Breiðholti. Nánar tiltekið í Suðurhólum 35.
Fín íbúð sem við erum búin að kaupa hérna.
Seldi Mözduna og kominn á nýlegan Legacy.
Kominn með vinnu, er að vinna með Pétri bróður hjá fyrirtæki sem kallast Ljósvirki ehf.
Er að vinna í úthöldum akkúrat núna. 2 vikur vinna og frí í eina helgi. Fín laun og mjög góður mórall. Ungur vinnualdur í úthaldshópnum sem er fínt, gaman að grínast og hafa gaman.
Það sem við erum að gera er að leggja ljósleiðara frá Fljótsdal fyrir austan til Akureyrar. Ég og Pétur erum að splæsa saman ljósleiðarann á meðan hinir strákarnir eru í jarðvinnudeildinni.
Búinn að vera að flakka mjög mikið þarna fyrir austan, og verð ég bara að segja að þetta er mjög flott svæði þarna. Allveg svaka gott myndefni þarna, en ég gleymi alltaf myndavélinni, ætla að taka hana með núna. Og taka helling af myndum.
Veit ekki allveg hvað ég ætti að segja meira, kemur sennilega blogg aftur eftir 2 vikur.
Tími til kominn!! :)
Já, þetta er nú bara búið að vera fínt sumar, eða mér finnst það.
Búinn að vera megnið af sumrinu í sjónum, ekki kvarta ég undan því, annaðhvort á JetSki'nu, eða þá bara hoppandi með fólkinu hérna. Hafliði, Anna, Þrúða og Askur eru þau sem eru búin að vera duglegust að hoppa með
Svo er maður líka kominn með dummdummdumm NÝJAN BÍL!!! kemur það ekki á óvart ??
Jebb, skipti Hiluxnum fyrir Mözdu 323F, árgerð 1998. Mjög fínn snattari, þar sem maður er nú að fara að flytja suður. Já þið lásuð rétt, við Raggý erum að fara að flytja suður, nánar tiltekið í efra breiðholtið, suðurhólar heitir það minnir mig
Erum að koma suður á morgun til að skrifa undir, erum að kaupa þarna litla íbúð fyrir okkur. Svo bara að redda sér vinnu, er að fara í starfsviðtal líka á Föstudaginn. Munum vera frammá Mánudag held ég fyrir sunnan. Reyna að hafa eitthvað gaman. Kíkja á fjölskylduna líka. Sjá loksins íbúðina hjá honum Pétri, búinn að vera að bíða eftir að fá að sjá hana síðan hann keypti hana!!
Skoða svo líka enduro hjólið hjá drengnum! Kvikindið keypti sér KTM 450 hjól! Kannski fær maður að prófa
Drengurinn ekki nema búinn að vera með hann á sölu síðan einhvern tíma MJÖG snemma á árinu.
Já, þetta eru víst aðeins lengra en 2 línur en þið verðið bara að fyrirgefa mér það.
Nýtt blogg
Heilmikið búið að ske síðan ég bloggaði síðast, sumt gott, en annað mjög slæmt.
Til að byrja með, þá er ég kominn með aðra vinnu, er að vinna á Hjólbarðaverkstæði Ísafjarðar. Þar er maður að dekkjavesenast, svo erum við líka með smurþjónustu, og svo eru líka svona minniháttar viðgerðir líka hjá okkur, þ.e.a.s. að skipta um bremsur og dempara og allt slz stöff![]()
Svo fór ég til RVK síðasta fimmtudag(31.Maí)
Raggý að fara í kistulagningu hjá ömmu sinni, og svo var amma hennar jörðuð Þriðjudaginn 5.Júní og var ég kistuberi fyrir gömlu konuna. Æðislega kona sem allir hefðu átt að fá að kynnast.
Svo fékk maður HRÆÐILEGAR fréttir Mánudaginn 4.Júní, deginum fyrir jarðarförina, þá var hún Guðbjört Lóa að kveðja okkur ![]()
![]()
![]()
Samhryggist öllum hennar aðstandendum.
Maður var bara eins og illa útleikinn boxari að fá að vita þetta.
Hún kenndi manni margt gegnum lífið, og eflaust hafa margir lesið bloggið hennar, blomaros.bloggar.is
Þar bloggaði hún um baráttu sína, leyfði okkur að fylgjast með hverskonar Hetja hún var.
Góđan daginn...

En já, hef nú lítið sem bara alls ekki neitt bloggað síðan ég flutti vestur.

En annars svona þá er maður búinn að selja bæði Polo og Impredz ( Sé ALLVEG GASALEGA eftir Imprezunni minni) !!!

Og búinn að kaupa sér eitt stykki Toyota Hilux, árgerð '91

Og sá bíll er allveg að virka vel, þrátt fyrir að vera bara 2.4 D non-turbo intercooler

En annars er hann nú aðeins soldið breyttur. Var upprunalega Double Cab bíll, svona eins og Pétur bróðir á, en svo var farið í að taka pallinn af, settur Xtra Cab pallur á hann og þar af leiðandi fært hásinguna aftur svo allt fittaði vel
Þannig að maður er kominn á Double Xtra Cab
Hann er svo rosalega langur miðað við venjulegan Xtra og Double cab bíla, enda allger fkn martröð að fá stæði í RVK á þessu, en í leiðinni mun auðveldara að komast leiðar sinnar, þ.e.a.s ef maður er nógu kræfur 
Svo var hún Raggý að kaupa sér bíl líka, hendi inn myndum af honum annaðhvort hérna hjá mér eða henni þegar ég fæ að taka myndir af honum

En það mun vera eðal kerra, eða Toyota Corolla Xli 1300cc 3 dyra og held ég bara að hann sé að virka mjög vel, árgerð 94 og ekki keyrður nema í kringum 150þ km.
Annars erum við stödd fyrir sunnan, meðan amma hennar Raggýjar er veik, Raggý að vinna í krambúðinni ásamt því að vera hjá ömmu sinni og ég hérna upp í Borgarnesi með hundinn Hróa og er að vinna hjá Pálma

Svo var ég að drullast loksins til að ná í skotvopnaleyfið mitt og keypti ég mér í leiðinni riffil af gerðinni Savage Mark II 22.cal l.r og það er nú bara nokkuð gaman að skjóta af þessu, lét setja á hann sjónauka, og ég bara bjóst ekki við því hvað hægt er að hitta af mikilli nákvæmni af frekar löngu færi af 22.cal riffli

Mjög svo ánægður með hann. Svo erum við Raggý og Hrói að fara aftur vestur núna á laugardagsmorgun, keyrandi á báðum bílunum. Að vísu munum við tefjast útaf mínum trukki því hann er nú ekkert fljótur upp brekkurnar greyið, en kemst þangað sem hann ætlar sér
En Raggý er eimitt að fara að vinna á laugardaginn og ég ætla að vera hjá henni að horfa á Eurovision, drekka kannski bjór og hafa gaman, vonandi!Svo er bara að halda áfram að vinna fyrir vestan, vona að maður finni nú eitthvað skárri vinnu þarna, nenni ekki að vera endalaust að vesenast í þessum fiskibransa, fékk allveg nóg af því á Þingeyri!!..





